Þrastaskógur í Grímsnesi austan við Ingólfsfjall er svæði UMFÍ til skógræktar sem var gefið samtökunum af Tryggva Gunnarssyni á 77 ára afmæli hans, þann 18. október 1911.  UMFÍ hefur unnið að ræktun skógarins í rúm 90 ár og í dag er Þrastaskógur ein af náttúruperlum suðurlands.  


Verkefnasjóður

Verkefnasjóður UMFÍ

Vinnureglur stjórnar UMFÍ við úthlutanir úr verkefnasjóði.

1. Almennt:

Stjórn UMFÍ fer með stjórn verkefnasjóðs og fer úthlutun fram á stjórnarfundum, eftir umsóknum eða að eigin frumkvæði.
Umsóknir í verkefnasjóð skulu berast þjónustumiðstöð UMFÍ a.m.k. 2 vikum fyrir stjórnarfund. Umsóknum í verkefnasjóð skal fylgja fjáhagsáætlun yfir það verkefni sem sótt er um styrk til og eftir atvikum reikningar og áætlanir um niðurgreiðslu skulda.
Heimilt er stjórn að veita lán úr sjóðunum, en þá er um fyrirframgreiðslu lottófjár að ræða, með veði í lottóágóða viðkomandi sambandsaðila.

2. Óvænt skakkaföll:
Óvænt skakkaföll eru styrk- og lánshæf og þegar árviss fjáröflun bregst sem hefur skilað sambandsaðila verulegum hluta rekstrartekna, og hefur í för með sér verulegan fjárhagsvanda.
Uppsafnaður rekstrarvandi er ekki styrkhæfur, en sé hann verulegur kemur til greina að veita sambandsaðila lán í slíkum tilvikum.

3. Nýjungar í starfi:
Ekki er styrkt eða lánað þó teknar séu upp nýjar íþróttagreinar en fræðslustarf og námskeiðahald til að koma nýrri íþróttagrein á legg gæti hinsvegar fallið undir fræðslusjóð UMFÍ. Að öðru leyti fer um úthlutanir eftir mati stjórnar UMFÍ.

4. Afmörkun verkefna:

Ekki er styrkt eða lánað til mannvirkjagerðar, áhaldakaupa, keppnisferða, uppskeruhátíða eða mótahalds.

Stofun félags, sem stjórn UMFÍ veitir beina aðild að samtökunum er styrkhæf fram að næsta þingi UMFÍ, enda fái félagið ekki lottóágóða á annan hátt frá UMFÍ. Styrkhæf eru stór sameiginleg verkefni sem einn eða fleiri aðilar taka að sér í þágu hreyfingarinnar allrar.
Að öðru leyti en hér kemur fram fer um úthlutanir eftir mati stjórnar UMFÍ.

5. grein 
Reglugerð þessari verður aðeins breytt á sambandsþingi UMFÍ og þarf að hljóta 2/3 hluta greiddra atkvæða.

Umsóknareyðublað:


Á döfinni
04. júlí 2013
27. Landsmót UMFÍ á Selfossi
Samstarfsaðilar

Sambandsaðilar
Aðsendar greinar Heilsuhornið Verkefni UMFÍ Ýmislegt





 
 
 

 umfi
 umfi
 
 
  flott án fíknar
 
 
 Felix
 
umfi

 
umfi

umfi
© Allur réttur áskilinn 1998-2004, UMFÍ·Laugavegur 170 · 105 Reykjavík Sími 568 2929 · Bréfasími 568 2935 · Netfang: umfi hjá umfi.is