Gróðursetning
Reglugerð samþykkt á starfsíþróttaþingi UMFÍ á Akureyri 24. apríl 2010
Keppnisfyrirkomulag / reglur:
Fyrirkomulag keppni
Gróðursett er í raðir. Hver keppandi gróðursetur eina eða fleiri raðir eftir því hvernig gróðursetningarsvæðið er í laginu. Þurfi hver þátttakandi að gróðursetja í fleiri en eina röð þá skulu raðirnar vera hlið við hlið. Raðirnar skulu vera númeraðar og draga keppendur númer og þar af leiðandi þær raðir sem þeir gróðursetja í. Svæðið sem gróðursett er í þarf að vera greiðfært og lítið grýtt og eins einleitt og mögulegt er þannig að ekki skapist aðstöðumunur á milli keppenda. Einnig skal gróður á svæðinu vera það gróskulítill að ekki þurfi að handflekkja fyrir plöntum áður en gróðursett er.
Trjáplöntur
Notast skal við bakkaplöntur sem búið er að flokka og þar með fjarlægja allar lélegar og skemmdar plöntur. Dómurum ber að skoða plöntur hvers keppanda áður en hann hefur keppni og ganga úr skugga um að fjöldi sé réttur og gæði plantna í lagi.
Gróðursetning
Bil milli plantna í gróðursetningarkeppninni á þessu landsmóti á Akureyri verður 1,8 m. Við gróðursetninguna skal annað hvort nota plöntustaf eða geispu. Keppendum er leyfilegt að koma með eigin verkfæri, annars leggur mótsstjórn þau til, þar með talin gróðursetningarbelti. Þeir keppendur sem nota eigin verkfæri skulu koma með þau til skoðunar hjá dómnefnd eigi síðar en 2 klst. fyrir keppni. Plöntu skal gróðursetja á þann hátt að lífslíkur hennar séu sem mestar. Nánar er gert grein fyrir hvernig skuli standa að gróðursetningu í stigagjöf.
Fjöldi trjáplantna
Gróðursettar verða samtals 80 plöntur á hvern keppanda úr 40 gata bökkum. Merkja skal hverja röð með númeri.
Gróðursetningarsvæði merkt
Gróðursetningarsvæðið skal merkja greinilega. Setja skal stangir eða hæla við byrjun og endamörk hverrar raðar. Merkja skal hverja röð með númeri. Landið sem afmarkað er fyirr gróðursetninguna er mælt nákvæmlega út fyrir þann fjölda sem setja á niður með fyrirfram ákveðnu millibili.
Stigagjöf:
Undirbúningur fyrir gróðursetningu
Hér er dæmt um hvernig keppandi undirbýr verkið, handfjatlar plöntur og verkfæri. Greinileg vandræði með að festa á sig gróðursetningarbelti gefur frádrátt upp á 1 stig. Að missa plöntubakka út úr höndum eða úr belti áður en gróðursetning hefst gefur frádrátt upp á 2 stig. Að missa plöntu/plöntur úr plöntubakka gefur frádrátt upp á 2 stig.
Hámarksfrádráttur: 5 stig
Vinnuaðferð
Ef baki er ekki hlíft eins og kostur er, hámarksfrádráttur upp á 5 stig. Ef vinnutaktur fyrirfinnst ekki og vinnuhreyfingar virðast ekki markvissar, hámarksfrádráttur 5 stig.
Samtals hámarksfrádráttur: 10 stig.
Meðferð plantna
Ef keppandi missir plöntubakka úr plöntubelti, dragast frá 2 stig. Að missa plöntu/plöntur úr plöntubakka þýðir frádrátt upp á 2 stig. Ef greinilegt er að plöntur í bakka slást reglulega utan í verkfæri eða keppenda, dragast frá 2 stig.
Hámarksfrádráttur: 6 stig.
Gróðursetning
Gróðursetning skal útfærð á eftirfarandi hátt:
* Plöntunni skal valin staður þar sem lífslíkur eru góðar.
* Lágmarks- og hámarksbil milli plantna og plönturaða má ekki vera meira en uppgefið bil +/- 0,3 metra.
* Ekki mega sjást skemmdir á plöntum eftir gróðursetningu.
* Efri brún rótarhnauss plöntunnar má ekki ná upp fyrir yfirborð jarðvegs eða dýpra en 5 cm.
* Plantan skal vera föst í jarðveginum, þ.e.a.s. þoli létt átak.
* Plantan skal standa nokkurn veginn lóðrétt, hallamörk 20 gráður.
* Í þýfðu landi skal ekki gróðursetja plöntu upp á hæstu þúfnakolla eða dýpstu lægðir.
* Ekki má planta þar sem hætta er á holklaka í jarðvegi.
Hvert og eitt ofangreindra atriða gefur frádrátt upp á 1 stig. Að hámarki er hægt að fá eitt frádregið stig fyrir hverja plöntu.
Afgangsplöntur
Nái keppandi ekki að gróðursetja í allt hið fyrirfram afmarkaða gróðursetningarsvæði þá dregst frá 1 stig sem nemur hverju gróðursetningarbili sem umfram er.
Tími
Tímataka hefst hjá hæl við byrjun gróðursetningarraðar og endar á sama stað. Keppandi skal setja á sig plöntubelti og plöntubakka eftir að tímataka er hafin. Keppandi má einungis hafa 1 plöntubakka í plöntubelti á meðan á gróðursetningu stendur.
Sá sem er fljótastur fær 100 stig. Fyrir þá sem eru lengur dregst frá 1 stig fyrir hverjar 5 sekúndur sem eru umfram besta tíma.
Keppendur jafnir að stigum
Séu keppendur jafnir að stigum telst sá vera framar í keppninni sem fær færri stig til frádráttar í keppninni.












