Landsmót
Fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri árið 1909. Nú hafa verið haldin 26 Landsmót, það síðasta á Akureyri árið 2009.
Á Landsmótum er keppt í um 30 greinum, hefðbundnum íþróttagreinum sem og svokölluðum starfsíþróttum sem notið hafa mikilla vinsælda.
Þátttaka á Landsmótum UMFÍ hefur verið góð og ætíð er sérstök stemming sem mótunum fylgir.
Þátttakendur á síðasta Landsmóti UMFÍ voru um 2.700 talsins. Gestir mótanna eru á bilinu 12.000 – 20.000 en flestir hafa þeir verið á Laugarvatni árið 1965, 25.000 talsins.
Sjá heimasíðu: http://landsmotumfi.is/












