Ungmennaráð

Ungmennaráð UMFÍ er skipað sjö fulltrúum á aldrinum 15 – 25 ára. Markmið ungmennaráðs er að ungmenni fái aukna ábyrgð og tækifæri til að taka þátt í ákvarðanatöku um mótun þess félags- og tómstundastarfs sem þau eru virk í og tengja skoðanir sínar í inn í starf ungmennafélagshreyfingarinnar.

Stjórn UMFÍ skipar í ráðið til tveggja ára í senn. Heimilt er að skipa sama fulltrúann oftar en einu sinni í ráðið ef hann er innan aldursmarkanna.

Stjórn og framkvæmdastjórn UMFÍ geta vísað málum til Ungmennaráðs til umfjöllunar og umsagnar.

Áhugasamir geta sótt um inngöngu í ungmennaráðið með því að senda póst á umfi@umfi sem kemur umsóknum áfram til stjórnar UMFÍ.

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram:
• Nafn
• Kennitala
• Sambandsaðili UMFÍ
• Áhugamál / Reynsla
• Hvers vegna viltu vera í ungmennaráði UMFÍ

Nánari upplýsingar  um ungmennaráðið  er að finna í síma 568-2929/umfi@umfi.is  eða hjá fulltrúum ungmennaráðsins.



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
lm50_umsoknir_13_14_180px
landsfulltrui_2x13_180px
Evrópa unga fólksins

Lotto
isafold

Sambandsaðilar