Jurtagreining



Reglugerð samþykkt á starfsíþróttaþingi UMFÍ á Akureyri 24. apríl 2010

Keppnisfyrirkomulag / reglur:
1. Keppnin er fólgin í því að greina rétt tegundarnafn plantna.

2. Mótshaldari velur 40 lifandi plöntur af skrá yfir 150 íslenskar tegundir, sem keppendur eiga að greina.

3. Allir keppendur byrja samtímis. Hámarkstími er 40 mínútur, að þeim tíma loknum skulu þeir hafa skilað gögnum sínum til dómnefndar.

4. Sá keppandi sigrar sem getur nafngreint flestar tegundir rétt. Verði tveir keppendur eða fleiri jafnir í stigasætum skulu lagðar fyrir 5 aukaplöntur sem þeir fá 10 mínútur til að greina. Aukaplönturnar þurfa ekki að vera af 150 tegunda listanum en skulu hafa verið til umfjöllunar í nýjustu útgáfu Plöntuhandbókarinnar eftir Hörð Kristinsson. Séu tveir keppendur eða fleiri enn jafnir að loknum aukaplöntunum skal gripið til bráðabana þar sem lagðar eru fyrir stakar aukaplöntur þar til skorið verður úr um röð. Ekki skulu þó lagðar fyrir fleiri aukaplöntur en 10.

5. Þriggja manna dómnefnd fylgist með að keppni fari rétt fram og sker úr um röð keppenda.

Engin sérstök skilyrði eru sett um þátttöku í greininni.

Keppendum er leyfilegt að taka stækkunargler (lúpu) með til keppni en að öðrum kosti eru engin fylgigögn leyfð, nema listi til að fylla út nöfn tegundanna og skriffæri, hvort tveggja skaffað af mótshöldurum.

Skrá yfir jurtir vegna keppni í jurtagreiningu á landsmóti UMFÍ

 Nr. Íslenskt heiti Latneskt heiti  Nr. Íslenskt heiti Latneskt heiti
1. Aðalbláberjalyng Vaccinium myrtillus
2. Augnfró Euphrasia frigida
3. Axhæra Luzula spicata
4. Baldursbrá Matricaria maritima
5. Beitilyng Calluna vulgaris
6. Bjúgstör Carex maritima
7. Bláberjalyng Vaccinium uliginosum
8. Blágresi (Storkablágresi) Geranium sylvaticum
9. Bláklukka Campanula rotundifolia
10. Blákolla Prunella vulgaris
11. Blálilja Mertensia maritima
12. Blátoppastör Carex canescens (C. curta)
13. Blávingull (Sauðvingull) Festuca vivipara
14. Blóðarfi Polygonum aviculare
15. Blóðberg Thymus praecox arcticus
16. Blómsef Juncus triglumis
17. Brennisóley Ranuculus acris
18. Brjóstagras Thalictrum alpinum
19. Brönugras Dactylorhiza maculata
20. Burnirót Rhodiola rosea
21. Dýragras (Bláin) Gentiana nivalis
22. Einir Juniperus communis
23. Engjarós Potentilla palustris
24. Engjavöndur Gentianella detonsa
25. Eyrarrós Epilobium latifolium
26. Fergin Equisetum fluviatile
27. Fjalladúnurt Epilobium anagallidifolium
28. Fjallafoxgras Phleum alpinum
29. Fjallasveifgras Poa alpina
30. Fjallavíðir (Grávíðir) Salix arctica (S. callicarpaea)
31. Fjalldalafífill Geum rivale
32. Fjalldrapi Betula nana
33. Fjöruarfi Honckenya peploides
34. Flagahnoðri (Meyjarauga) Sedum villosum
35. Flagasef Juncus biglumis
36. Friggjargras Platanthera hyperborea
37. Garðabrúða Valeriana officinalis
38. Geithvönn Angelica sylvestris
39. Geldingahnappur Armeria maritima
40. Gleym-mér-ei (Kattarauga) Myosotis arvensis
41. Grasvíðir (Smjörlauf) Salix herbacea
42. Grávorblóm Draba incana
43. Græðisúra Plantago major
44. Grænvöndur Gentianella amarella
45. Gullmura Potentilla crantzii
46. Gullvöndur Gentianella aurea
47. Gulmaðra Galium verum
48. Gulstör Carex lyngbyei
49. Gulvíðir Salix phylicifolia
50. Haugarfi Stellaria media
51. Háliðagras Alopecurus pratensis
52. Hálíngresi Agrostis capillaris
53. Hárdepla Veronica officinalis
54. Hárleggjastör Carex capillaris
55. Helluhnoðri Sedum acre
56. Hjónagras Pseudorchis albida
57. Hnúskakrækill Sagina nodosa
58. Holtasóley Dryas octopetala
59. Holurt (Fálkapungur, Flugnabú) Silene vulgaris
60. Horblaðka (Reiðingsgras) Menyanthes trifoliata
61. Hófsóley (Lækjarsóley) Caltha palustris
62. Hrafnafífa (Einhneppa) Eriophorum scheuchzeri
63. Hrafnaklukka Cardamine nymanii
64. Hrímblaðka Atriplex glabriuscula
65. Hrossanál Juncus arcticus ssp. intermedius
66. Hrútaberjalyng Rubus saxatilis
67. Hundasúra Rumex acetosella
68. Húsapuntur Elymus repens
69. Hvítmaðra Galium normanii
70. Hvítsmári Trifolium repens
71. Ilmbjörk (Birki) Betula pubescens
72. Ilmreyr Anthoxanthum odoratum
73. Jakobsfífill Erigeron boreale
74. Jarðarber Fragaria vesca
75. Kattartunga Plantago maritima
76. Klófífa Eriophorum angustifolium
77. Kornsúra Bistorta vivipara
78. Krossmaðra Galium boreale
79. Krækilyng Empetrum nigrum
80. Lambagras Silene acaulis
81. Lindadúnurt Epilobium alsinifolium
82. Ljónslappi Alchemilla alpina
83. Ljósadúnurt Epilobium lactiflorum
84. Ljósberi Lychnis alpina
85. Loðvíðir Salix lanata
86. Lokasjóður (Peningagras) Rhinanthus minor
87. Lófótur Hippuris vulgaris
88. Lyfjagras Pinguicula vulgaris
89. Lækjadepla Veronica serpyllifolia
90. Lækjafræhyrna Cerastium cerastoides
91. Maríustakkur Alchemilla vulgaris
92. Maríuvöndur Gentianella campestris ssp islandica
93. Melasól (Draumsóley) Papaver radicatum
94. Melgresi (Melur) Leymus arenarius
95. Mjaðjurt Filipendula ulmaria
96. Mosajafni Selaginella selagionoides
97. Mosalyng Cassiope hypnoides
98. Mosasteinbrjótur Saxifraga hypnoides
99. Móasef Juncus trifidus
100. Músareyra Cerastium alpinum
101. Mýradúnurt Epilobium palustre
102. Mýrasóley Parnassia palustris
103. Mýrastör Carex nigra
104. Mýrelfting Equisetum palustre
105. Mýrfjóla Viola palustris
106. Ólafssúra Oxyria digyna
107. Reynir Sorbus aucuparia
108. Sauðamergur Loiseleuria procumbens
109. Sefbrúða (Trefjasóley) Ranuculus hyperboreus
110. Skammkrækill Sagina procumbens
111. Skarfakál Cochlearia officinalis
112. Skarifífill Leontodon autumnalis
113. Skeljamura Potentilla egedii
114. Skollafingur Huperzia selago
115. Skriðlíngresi Agrostis stolonifera
116. Skriðnablóm Arabis alpina
117. Skriðsóley Ranunculus repens
118. Skriðuhnoðri Sedum annuum
119. Smjörgras (Lokasjóðsbróðir) Bartsia alpina
120. Snarrótarpuntur Deschampsia caespitosa
121. Sortulyng Arctostaphylos uva-ursi
122. Sótstör Carex atrata
123. Steindepla Veronica fruticans
124. Stinnastör Carex bigelowii
125. Sýkigras (Bjarnarbroddur) Tofieldia pusilla
126. Tágamura (Silfurmura) Potentilla anserina
127. Tjarnastör (Blástör) Carex rostrata
128. Tófugras Cystopteris fragilis
129. Tungljurt Botrychium lunaria
130. Túnfífill Taraxacum
131. Túnsúra (Blöndustokkur) Rumex acetosa
132. Túnvingull Festuca richardsonii
133. Týsfjóla Viola canina
134. Umfeðmingur Vicia cracca
135. Undafífill Hieracium
136. Vallarfoxgras Phleum pratense
137. Vallarsveifgras Poa pratensis
138. Vallhumall Achillea millefolium
139. Vallhæra Luzula multiflora
140. Varpasveifgras Poa annua
141. Vatnsnál Eleocharis palustris
142. Vegarfi Cerastium fontanum
143. Vetrarblóm Saxifraga oppositifolia
144. Vetrarkvíðastör Carex chordorrhiza
145. Þráðsef Juncus filiformis
146. Þrenningargras (Þrenningarfjóla) Viola tricolor
147. Þríhyrnuburkni Thelypteris phegopteris
148. Þrílaufungur Gymnocarpium dryopteris
149. Þursaskegg Kobresia myosuroides
150. Ætihvönn Angelica archangelica



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
lm50_umsoknir_13_14_180px
Evrópa unga fólksins

Lotto
isafold

Sambandsaðilar