Dráttarvélaakstur
Reglugerð samþykkt á starfsíþróttaþingi UMFÍ á Akureyri 24. apríl 2010
Keppnisfyrirkomulag / reglur:
Akstur dráttarvélar:
Til keppninnar er notuð fjórhjóladrifin dráttarvél með ámoksturstækjum og lyftaragöfflum. Einnig tveir flutningavagnar (sturtuvagnar) á fjórum samstæðuhjólum (tandem) sem notaðir eru á víxl.
Keppnin felst í:
1. Tengingu á lyftaragöfflum, færslu byrðar milli vagna og tengingu vagns við dráttarvél.
2. Akstri dráttarvélar með vagni um hlið, krákustíga og gatnamót, stöðvun við viðnámspunkta. Ekið er bæði áfram og afturábak.
3. Aftengingu vagns og lyftaragaffla og dráttarvél lagt.
Stæði er 20 cm breiðara en mesta breidd ökutækja og merkist með snúrum.
Vegamót miðast við lengd og breidd ökutækja og merkjast með snúrum. Breidd þvervegar er 5 m en breidd aðalvegar fer eftir lengd ökutækja.
Hliðin eru 15 cm breiðari en mesta breidd ökutækja.
Viðnámspunktar merkjast með strengdri snúru eða slá.
Krákustígur markast með 5 strikum í beinni röð með 7,0 m millibili.
Hámarkstími í braut er 10 mínútur (gefinn verður upp refsilaus tími).
Stigatafla:
1. Hreyfill ræstur, lyftaragafflar tengdir - 5 stig.
2. Vagn hlaðinn - 5 stig.
3. Tenging vagns - 5 stig
4. Krákustígur - 10 stig.
5. Gatnamót, stöðvun við viðnámspunkt A - 15 stig.
6. Krákustígur, stöðvun við viðnámspunkt B - 15 stig.
7. Akstur um hlið - 15 stig.
8. Vagn tekinn frá og gafflar teknir af - 5 stig.
9. Véltækni - 10 stig.
10. Tími - 15 stig.
Samtals: 100 stig
Dómur:
1. 2 ½ stig dragast frá við mistök í tengingu gaffla.
2. 2 ½ stig dragast frá í hvert sinn er gafflar lenda í byrðinni eða hún lendir utan merkts svæðis á vagni.
3. 2 ½ stig dragast frá við mistök í tengingu vagns.
4. 2 ½ stig dragast frá við að snerta stöng í krákustíg.
5. 2 ½ stig dragast frá er stöng eða snúra er snert á gatnamótum. Stöðva skal við viðnámspunkt þannig að mesta bil milli hennar og dráttarvélar sé 20 cm. Sé bilið meira eða hún snert, dragast frá 2 ½ stig.
6. 2 ½ stig dragast frá við að fella stöng í krákustíg. Stöðva skal við viðnámspunkt með sama hætti og lýst er í lið 4.
7. 2 ½ stig dragast frá við að fella hliðstöng.
8. 2 ½ stig dragast frá ef stöðufótur vagns lendir ekki á réttum stað. Önnur mistök við aftengingu draga niður um 2 ½ stig.
9. Dregið er frá 1-2 stig fyrir hvert eftirtalinna atriða:
a) Núist hjól við tengivagn.
b) Óþörf stöðvun hreyfils.
c) Misnotkun aðaltengils.
d) Slæm gíraskipting.
e) Miklir rykkir í akstri.
f) Röng vinnustaða.
g) Aðrir gallar í meðferð tækja.
10. Draga skal frá 1 stig fyrir hverja hálfa mínútu, sem keppandi fer fram yfir hinn ákveðna tíma að aka brautina.
Tilhögun keppninnar:
1. Ökumaður byrjar keppnina á að gangsetja dráttarvélina. Hann tengir gafflana við ámoksturstækin - 5 stig.
2. Ökumaður flytur byrði af þeim vagni sem dráttarvélin stóð við á annan vagn og notar til þess gafflana á ámoksturstækjunum - 5 stig.
3. Ökumaður tengir hlaðna vagninn við dráttarvélina - 5 stig.
4. Ökumaður ekur með vagninn sem leið liggur um “krákustíg” að gatnamótum - 10 stig.
5. Ökumaður snýr við á gatnamótum og ekur þvínæst rakleitt að viðnámslínu sem komið hefur verið fyrir við punkt A -15 stig.
6. Ökumaður ekur afturábak um sama “krákustíg” að viðnámslínu B innst á gatnamótum og stöðvar þar - 15 stig.
7. Ökumaður ekur beint áfram, tekur vinstri beygju við punkt A og ekur um hliðin og leggur vagninum á sama stað og hann var tekinn þannig að stöðufótur lendi á trékubb sem þar er skorðaður - 15 stig
8. Vagninn losaður frá dráttarvélinni, gafflarnir teknir af á gafflastæði og vélinni lagt í sömu stefnu og vagninn ca. 2 metra frá vagninum. Mótor stöðvaður og dráttarvél yfirgefin - 5 stig.
9. Véltækni - 10 stig.
10. Tími -15 stig.

Smellið á mynd til að skoða stærri
Þátttökuréttur:
Þátttakendur skulu hafa gild ökuréttindi.












