Reglugerð um Unglingalandsmót UMFÍ

1. grein
Unglingalandsmót UMFÍ skal fara fram um verslunarmannahelgi ár hvert. Mótið standi í þrjá daga, frá föstudegi til sunnudags og fer setning mótsins fram á föstudagskvöldi.

2. grein
Markmið með mótinu er að ná til sem flestra ungmennafélaga á unglingsaldri. Stuðla að þátttöku þeirra í íþróttum og efla félagslega samkennd þeirra. Lögð skal áhersla á fjölbreytta dagskrá sem höfði jafnt til keppenda sem og annarra gesta landsmótsins. Stjórn UMFÍ komi verulega að kynningu mótsins og kosti hana að hluta til.

3. grein
Rétt til þátttöku eiga öll ungmenni á aldrinum 11 – 18 ára á almanaksárinu, sem eru félagar í íþrótta- eða ungmennafélagi. Þátttakendur skulu skrá sig undir nafni viðkomandi héraðssambands eða íþróttabandalags og mæta með ábyrgum fararstjóra.

4. grein
Engin takmörk eru sett á keppendafjölda frá hverju héraðssambandi/ íþróttabandalagi, né heldur á fjölda þátttökugreina einstaklings. Mótshaldara skal þó heimil takmörkun á þátttöku í einstökum greinum eftir að forskráningu lýkur ef aðstæður krefjast þess.

5. grein
Sambandsaðilar skulu leitast við því að senda inn forskráningu fyrir 15. júní. Skal þar getið í hvaða greinum sambandsaðilar áætla að keppa í og áætlaður fjöldi í hverri grein. Mánuði seinna skal mótshaldari senda út uppkast að tímaseðli til sambandsaðila.
Viku fyrir mót skulu sambandsaðilar leitast við að gera endanlega skráningu á viðeigandi hátt. Miðvikudag fyrir mótsbyrjun lýkur skráningu. Endalegur tímaseðill í öllum keppnisgreinum skal liggja fyrir kvöldið fyrir mótsbyrjun með gögnum keppenda. Þátttökugjald greiððist við lokaskráningu.

6. grein
Keppni í íþróttagreinum skal fylgja reglugerð sérsambands viðkomandi greinar hvað aldursflokka varðar.

7. grein
Sambandsaðilar/íþróttabandalög sem áhuga hafa á að halda unglingalandsmót sæki um það til stjórnar UMFÍ og tilgreini í umsókn sinni þær íþróttagreinar sem mótshaldari vill láta keppa í. Þó skal aldrei keppt í færri en 5 íþróttagreinum en ekki fleiri en 10. Glíma skal vera ein af keppnisgreinunum.

8. grein
Allir keppendur hljóta viðurkenningu fyrir þátttökuna. Þrír fyrstu í hverri einstaklingsgrein hljóta verðlaun svo og einstaklingar í þremur fyrstu liðunum í flokkakeppni.

9. grein
Ekki skal reikna út heildarstigakeppni milli sambandsaðila/íþróttabandalaga.

10. grein
Mótshaldari skipar þriggja manna dómnefnd sem velja skal það héraðssamband/íþróttabandalag sem þykir sýna í heild bestu framkomu innan vallar sem utan. Skal það hljóta viðurkenninguna “prúðasta lið mótsins”.

11. grein
Skipa skal nefnd sem undirbýr og sér um framkvæmd mótsins. Nefndin skal skipuð af mótshaldara og stjórn UMFÍ.

12. grein
Í upphafi móts skal halda fund fararstjóra, mótsstjórnar og greinastjóra ásamt starfsmönnum íþróttakeppninnar. Mótshaldari auglýsir fundarstað og tíma.

13. grein
Áður en keppni hefst skal stjórn UMFÍ skipa þriggja manna dómnefnd, þar af einn sem er tilnefndur af unglingalandsmótsnefnd. Nefndin skal fjalla um öll deilumál sem upp koma í keppninni og dæma í þeim samkvæmt reglugerð þessari og leikreglum viðkomandi sérsambands. Kærur skulu vera skriflegar og undirritaðar af fyrirliða og fararstjóra og berast mótsstjórn eigi síðar en þremur klukkustundum eftir lok þeirrar keppni sem kæra á. Fulltrúi kæranda skal vera viðstaddur meðferð málsins og fulltrúi kærða skal eiga þess kost. Úrskurði dómnefndar verður ekki áfrýjað.

14. grein
Reglugerð þessi öðlast gildi eftir 43. sambandsþing UMFÍ 2003. Ennfremur voru gerðar breytingar á reglugerð þessari á 34. sambandsráðsfundi UMFÍ 2004.
 



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
lm50_umsoknir_13_14_180px
Evrópa unga fólksins

Lotto
isafold

Sambandsaðilar