maí08

Skráningar á 2. Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið verður í Mosfellsbæ 8.-10. júní í sumar ganga vel. Undirbúningi miðar vel áfram og er reiknað með góðri þátttöku á mótið. Það er mikill hugur í mótshöldurum og gengur undirbúningur samkvæmt áætlun. Athygli skal vakin á því að þátttakendafjöldi í golfi og pútti verður takmarkaður og því er um að gera fyrir keppendur í umræddum greinum að skrá í

Deila fréttinni Meira

aprí30

Í tilefni af Heilsuárinu 2012 í Mosfellsbæ og Landsmóti 50+, sem haldið verður í Mosfellsbæ dagana 8.-10. júní nk., verður mjög áhugaverður fyrirlestur fimmtudagskvöldið 3. maí kl. 20-21. Þar mun Unnur Guðrún Pálsdóttir "Lukka í Happ" leiða okkur allan sannleika um hollan, fallegan og spennandi mat! Fyrirlesturinn verður í hátíðarsal Varmárskóla, er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Jafnframt býðst gestum að kaupa bókin Happ Happ Húrra

Deila fréttinni Meira

mars29

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50 + sem haldið verður í Mosfellsbæ helgina 8. – 10. júní. Því er um að gera fyrir alla að skrá sig sem fyrst þar sem fjöldi keppenda verður takmarkaður í ákveðnum greinum. Keppnisgreinar á mótinu eru: Almenningshlaup ( Álafosshlaup, 7 tindahlaup) badminton, blak, boccia, bridds, frjálsar, golf, hestaíþróttir, hringdansar, knattspyrna, kraftlyftingar, línudans, pútt, ringó, skák, starfsíþróttir, strandblak, sund, sýningar og

Deila fréttinni Meira

mars06

2. Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Mosfellsbæ dagana 8.-10. júní í sumar. Í gær voru undirritaðir samningar á milli landsmótsnefndar og Mosfellsbæjar. Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, og Valdimar Leó Friðriksson, formaður landsmótsnefndar, undirrituðu samninginn. Undirbúningur fyrir mótið er í fullum gangi og gengur vel. Aðstaða í Mosfellsbæ er öll til fyrirmyndar fyrir Landsmót UMFÍ 50 +. Mosfellsbær rekur íþróttamiðstöð að Varmá og þar eru eru

Deila fréttinni Meira

mars02

Næstkomandi þriðjudag, 6. mars stendur Heilsuvin í Mosfellsbæ fyrir fræðslufundi um lýðheilsu og forvarnir, og er hann hluti af dagskrá Heilsuársins 2012 og undirbúningi að Landsmóti UMFÍ 50+, sem verður í Mosfellsbæ dagana 8.-10. júní nk. Fræðslufundurinn verður í Listasal Mosfellsbæjar, Þverholti 2, klukkan 20:00. Á dagskrá er kynning á fyrirtækinu Keyhabits og þjónustu þess. Ragnar Óskarsson frá Keyhabits mun mæta og kynna þá þjónustu sem fyrirtækið býður

Deila fréttinni Meira

febr16

Fundur var haldinn 15. febrúar með sérgreinastjórum sem koma að 2. Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður í Mosfellsbæ dagana 8.-10. júní í sumar. Á fundinum var farið yfir þeirra hlutverk og annan undirbúning fyrir mótið. Undirbúningur fyrir mótið er í fullum gangi og ríkir bjartsýni meðal mótshaldara og allir staðráðnir í að gera það sem veglegast. Fyrsta Landsmót UMFÍ 50+ var haldið eins og kunnugt

Deila fréttinni Meira

janú20

Undirritaður hefur verið samstarfssamningur við Margmiðlun sem felur í sér að fyrirtækið mun koma að undirbúningi og aðstoð við kynningu á 2. Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður í Mosfellsbæ dagana 8.-10. júní í sumar. Undirbúningur fyrir mótið er hafinn af fullum krafti og ríkir bjartsýni og ánægja með að mótið skuli haldið í Mosfellsbæ og allir staðráðnir í að gera það sem veglegast.

Deila fréttinni Meira

dese29

Þáttur um fyrsta Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið var á Hvammstanga dagana 24.-26. júní sl. sumar verður á dagskrá Ríkissjónvarpsins á nýársdag. Útsending þáttarins hefst klukkan 12 á hádegi og er tæplega hálftíma langur. Umsjónarmaður þáttarins er Samúel Örn Erlingsson. Mótið á Hvammstanga þótti takast einstaklega vel og voru keppendur á þriðja hundrað.

Deila fréttinni Meira

nóve02

Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Mosfellsbæ 8.-10. júní næsta sumar og er UMSK og Mosfellsbær mótshaldarar. Á fyrsta fundi landsmótsnefndar skipti stjórnin með sér verkum og er Valdimar Leó Friðriksson, UMSK, formaður og Helga Jóhannesdóttir, Aftureldingu, gjaldkeri. Mikil bjartsýni og ánægja er með að mótið skuli vera haldið í Mosfellsbæ og allir staðráðnir í að gera það sem veglegast. Fyrsta Landsmót UMFÍ 50+ var haldið á Hvammstanga sl. sumar og þótti

Deila fréttinni Meira

októ26

Á stjórnarfundi Ungmennafélags Íslands sem haldinn var 26. september var ákveðið að 2. Landsmót UMFÍ 50 + verði í umsjón Ungmennasambands Kjalarnesþings, UMSK, með mótsstað í Mosfellsbæ. Fimm sambandsaðilar sóttu um að halda mótið en auk UMSK voru það USAH með Blönduós sem mótsstað, UMSB, Borgarnes, UÍA, Norðfjörður og UMSE með Dalvík sem mótsstað. Það var mat stjórnar að allir umsækjendur væru í stakk búnir til að

Deila fréttinni Meira

júní29

Landsmótsnefnd Landsmóts UMFÍ 50+ vill koma á framfæri til þeirra fjölmörgu, sem á einn eða annan hátt komuð að undirbúningi og framkvæmd 1. Landsmóts UMFÍ 50+ um síðustu helgi, innilegar þakkir fyrir frábær störf. Íbúar Húnaþings vestra sýndu svo sannarlega að þegar þeir leggjast í sameiningu á árarnar þá verður árangurinn frábær. Mynd: Hluti landsmótsnefndar og starfsmanna sem kom að mótinu.

Deila fréttinni Meira

júní26

Í dag lýkur keppni á Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið er á Hvammstanga en mótið hefur í alla staðið farið mjög vel fram. Í morgun hófst keppni í pútti, skák og starfsíþróttum þar sem keppt er í pönnubökubakstri og kökuskreytingu. Síðustu greinar mótsins eru keppni í þríþraut og dráttarvélaakstri. Pönnubökubakstur og kökuskreyting fer fram í grunnskólanum á Hvammstanga en þetta atriði hefur ávallt vakið mikla athygli á landsmótum í

Deila fréttinni Meira

júní25

Fjallaskokkið 2011 var þreytt í dag en hlaupið, sem fer fram árlega, var einn af dagskrárliðum Landsmóts UMFÍ 50+ sem haldið er á Hvammstanga um helgina. Hlaupið er frá Grund í frá Grund í Vesturhópi yfir Vatnsnesfjallið og endað ofan í Kirkjuhvammi á Hvammstanga. Vegalengdin er um 12. km. Gangan/skokkið/hlaupið er keppni þar sem gildir er að vera fyrstur yfir fjallið en að sjálfsögðu getur hver og einn gert þetta

Deila fréttinni Meira

júní25

,,Þetta mót er frábært til örva þá sem virkilega þurfa á hreyfingu að halda því viðhaldið verður mikilvægara með árunum,“ sagði Trausti Valdimarsson, lyflæknir- og meltingarsérfræðingur á Akranesi, sem ætlar að taka þátt í öllum hlaupa- og sundgreinum að undanskildu fjórsundi á Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið er á Hvammstanga um helgina. Trausti tekur þátt í Fjallaskokkinu í dag og lýkur síðan keppni með þríþrautinni á morgun.

Deila fréttinni Meira

júní25

Fyrsta Landsmót UMFÍ 50+ var sett við Hvammsá á Hvammstanga í kvöld. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra, og Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, voru meðal þeirra sem fluttu stutt ávörp. Á þriðja hundrað keppendur eru skráðir til keppni og hófst keppni í dag og verður framhaldið á morgun en mótinu lýkur á sunnudag. Eftir setningu

Deila fréttinni Meira

year: 2012 + month: 5
maí 2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-55|2012
2012-5 = 2012-4


lm50-2012-merki




umsk-merki

mosfellsbaer-merkit 

 samsung_logo

 

 
 

 

 

 


Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins


Sambandsaðilar