Ungmennafélagshreyfingin rekur Þjónustumiðstöð UMFÍ að Laugavegi 170 í Reykjavík, þaðan er hinum rúmlega 90 þúsund félagsmönnum þjónað. Starfið er mjög fjölbreytt út um allt land, þar sem fram fer fjölþætt starfsemi.


Aðsendar greinar
05. nóvember 2008

Pistill frá formanni UDN

Á laugardaginn kemur, þann  8. nóvember 2008 mun Ungmennasamband Dalamanna og Norður Breiðfirðinga halda upp á 90 ára afmæli sitt  í Dalabúð kl. 14. Tilefnið er að 90 ár eru síðan Ungmennasamband Dalamanna(UMSD) var stofnað, fyrsta sambandsþing U. M. S. D. var haldið 24. maí 1918, og er UMSD fyrsta samband ungmennafélaga á því svæði sem nú er sambandssvæði U. D. N., sem er Austur- Barðastrandasýsla og Dalasýsla.  Ungmennasamband Norður-Breiðfirðinga var stofnað 1936 og árið 1971 voru þessi tvö ungmennasambönd sameinuð undir sömu merkjum,  og nú heitir sambandið, Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga(U. D. N.)

 

Veturinn 1917-1918  fór undirbúningur undir stofnun sambandsins fram og vantar  nánari heimildir frá fundi í Laxárdal 10.des 1917 sem átti að vera stofnfundur , hvort hann var haldinn og ef svo var, hvað gerðist á honum. En ljóst er að ungmennafélagar í þeim 4 félögum sem stofnuðu U. M. S. D. létu frostaveturinn mikla ekki aftra sér við stofnun ungmennasambands.

Fróðlegt er að lesa lýsingar Geirs  Sigurðssonar frá Skerðingsstöðum í bókinni  “Frá morgni aldar”  frá aðdraganda og fyrstu skrefum U. M. S. D. en þar segir m.a.

 

,,Sögustaðurinn Sælingsdalstunga  í Hvammssveit á sér  vinalegan stað í tungubroddi við ármót. Þar er grösug grund undir háu barði. Staður þessi ber nafnið PARADÍS. Sunnudagurinn í þrettándu viku sumars var þarna margt fólk saman komið, flest af  því voru meðlimir í fjórum ungmennafélögum í Dalasýslu, sem höfðu nýlega stofnað Ungmenna samband Dalamanna. Þetta átti að vera “kynningarmót”.Það var engin bundin dagskrá fyrirhuguð í Paradís hinna ungu þennan dag. Fjör og frelsi fékk að ráða vorblæ og athöfnum. Þetta gerðist af sjálfu sér:  Ávörp, söngur, þjóðdansar, hlaup,stökk, glímur, hlaupið í skarðið og dansað.

 

 Það var eins og aukið víðsýni fylgdi fjölmennum æskulýðshópi heim að erfiðum þætti sumaranna að kvöldi þessa dags.”

 

Verið öll velkominn í Dalabúð Laugardaginn 8. nóvember.

 

Íslandi allt

 

Finnbogi Harðarson

Formaður U. D. N.

Til baka
Prentvæn útgáfa

Á döfinni
04. júlí 2013
27. Landsmót UMFÍ á Selfossi
Samstarfsaðilar

Sambandsaðilar
Aðsendar greinar Heilsuhornið Verkefni UMFÍ Ýmislegt





 
 
 

 umfi
 umfi
 
 
  flott án fíknar
 
 
 Felix
 
umfi

 
umfi

umfi
© Allur réttur áskilinn 1998-2004, UMFÍ·Laugavegur 170 · 105 Reykjavík Sími 568 2929 · Bréfasími 568 2935 · Netfang: umfi hjá umfi.is