Velkomin á
stærstu íþrótta- og fjölskylduhátíð
landsins
Almenningur greiðir ekki aðgangseyri að keppni
og öðrum viðburðum á Landsmótinu
Þann 17. júlí sl. skutu mótshaldarar Landsmótshlaupsins, sem var hlaupið á Akureyri 11. júlí í sumar á 26. Landsmóti UMFÍ, ágreiningi sem reis um réttmæti úrslita í maraþoni kvenna, til Frjálsíþróttasambands Íslands. Ágreiningurinn var um hvort Ólöf Lilja Sigurðardóttir gæti talist sigurvegari í hlaupinu vegna meintrar hjálpar utanaðkomandi aðila við að komast yfir endamarkslínuna í hlaupinu.
Miklar og oft og tíðum óvægnar umræður risu um þetta mál í kjölfar hlaupsins og því var það samdóma álit allra þeirra sem að Landsmótshlaupinu stóðu - og eftir að hafa rætt við fjölda fólks í frjálsíþróttahreyfingunni - að eðlilegast væri að vísa málinu til umfjöllunar hjá Frjálsíþróttasambandinu, enda heyri keppni í hlaupagreinum, þ.m.t. maraþonhlaupi, jafnt í keppnishlaupum sem almenningshlaupum, undir FRÍ.
Vegna sumarleyfa og framkvæmdastjóraskipta þár á bæ hefur dregist að FRÍ tæki málið fyrir.
En nú liggur álit tækninefndar og stjórnar FRÍ loks fyrir. Niðurstaðan er afdráttarlaus: Öll aðstoð af því tagi sem átti sér stað í umræddu hlaupi, skv. staðfestum fyrirliggjandi gögnum, er ólögleg skv. 144 gr. keppnisreglna IAAF - Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins.
Að fenginni þessari niðurstöðu FRÍ er það einróma niðurstaða mótshaldara Landsmótshlaupsins að fella úr gildi úrslit í maraþoni kvenna og því verði röð þriggja efstu kvenna í hlaupinu eftirfarandi:
1. Sigríður Einarsdóttir
2. Sigrún K. Barkardóttir
3. Ingibjörg Kjartansdóttir
Af hálfu Landsmótsnefndar 26. Landsmóts UMFÍ á Akureyri er þessu máli hér með lokið.
| Aðsendar greinar | Heilsuhornið | Verkefni UMFÍ | Ýmislegt | |||||||||||
![]() |
![]() |
|
![]()
|
