20. júlí 2009
Landsmót Ungmennafélags Íslands eru stór og umfangsmikil. Keppnisgreinarnar fjölmargar og því í mörg horn að líta við skipulagninguna. Til þess að stýra hverri keppnisgrein er kallaður til greinarstjóri sem vinnur að undirbúningi og framkvæmd sinnar greinar í samstarfi við landsmótsnefnd.
Gunnar Þorvaldsson tók að sér greinarstjórn í þjóðaríþróttinni glímu á Landsmóti UMFÍ á Akureyri. Honum þótti vænt um að fá að takast á við þetta verkefni og lagði metnað sinn í að glíman fengi þann sess á Landsmótinu sem henni ber. Gunnar setti eilítið spurningamerki við þá hugdettu að glímumennirnir reyndu með sér á grasi undir berum himni, en komst fljótt að raun um að með því að glíma á hinum nýja leikvangi væri þjóðaríþróttinni gert hærra undir höfði en ella og fleiri áhorfendur ættu þess kost að sjá okkar bestu glímumenn takast á.
Gunnar vann sín verk af alúð og natni. Greinarstjórn í glímu á 26. Landsmóti UMFÍ var í góðum höndum hans. Að leiðarlokum þökkum við góð kynni og samstarf og mikilvægan þátt Gunnars í þessu 100 ára afmælismóti landsmótanna á Akureyri.
Að kvöldi síðasta mótsdags Landsmóts UMFÍ á Akureyri var Gunnar allur. Fyrirvaralaust og ótímabært andlát trausts félaga, sem átti rætur í ungmennafélagshreyfingunni og lagði henni ætíð lið þegar til hans var leitað.
Eiginkonu, börnum og öðrum aðstandendum sendum við innilegar samúðarkveðjur.
Landsmótsnefnd 26. Landsmóts UMFÍ á Akureyri