Þann 17. júlí sl. skutu mótshaldarar Landsmótshlaupsins, sem var hlaupið á Akureyri 11. júlí í sumar á 26. Landsmóti UMFÍ, ágreiningi sem reis um réttmæti úrslita í maraþoni kvenna, til Frjálsíþróttasambands Íslands. Ágreiningurinn var um hvort Ólöf Lilja Sigurðardóttir gæti talist sigurvegari í hlaupinu vegna meintrar hjálpar utanaðkomandi aðila við
Meira
Á fundi bæjarráðs Akureyrar 16. júlí sl. var gerð eftirfarandi bókun: "Bæjarráð lýsir ánægju sinni með afar vel heppnað landsmót og færir stjórn
UMFÍ, landsmótsnefnd og öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd mótsins sínar bestu þakkir."
Meira
Landsmót Ungmennafélags Íslands eru stór og umfangsmikil. Keppnisgreinarnar fjölmargar og því í mörg horn að líta við skipulagninguna. Til þess að stýra hverri keppnisgrein er kallaður til greinarstjóri sem vinnur að undirbúningi og framkvæmd sinnar greinar í samstarfi við landsmótsnefnd.
Gunnar Þorvaldsson tók að sér greinarstjórn í þjóðaríþróttinni
Meira
Erfitt er að meta hversu margir tóku þátt í Landsmóti UMFÍ. Við vitum að beinir þátttakendur í mótinu voru um tvö þúsund og þátttakendunum fylgdu fjölmargir. Þar fyrir utan kom mikill fjöldi fólks í bæinn.
Samkvæmt áætlunum lögreglu er því ekki óvarlegt að áætla að gestir hafi verið
Meira
Sögusýningin á Amtsbókasafninu verður opin framyfir verslunarmannahelgi, en þar er á skemmtilegan og lifandi hátt varpað ljósi á 100 ára sögu landsmótanna. Sýningin verður opin á opnunartíma safnsins. Björn Björnsson, leikmyndahönnuður, hannaði og setti upp sýninguna.
Meira
Landsmótshlaup UMFÍ 11. júlí sl. hefur vísað úrslitum í maraþonhlaupi kvenna til umfjöllunar hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands. Forráðamenn FRÍ hafa staðfest að málið verði tekið þar fyrir.
Rétt þótti að fá þar til færan óháðan aðila til þess að taka málið til umfjöllunar og fella lokadóm í því.
Meira